10 janúar 2012

Nýr gjaldmiðill ofl.

Maður getur leyft sér að skilja áhuga margra verkalýðsfrömuða og lífeyrissjóðarekenda, á að taka upp aðra mynt hér á landi en hvernig er hægt að gera það? Ekki má taka upp Evru nema að ganga fyrst í ESB en það vill þjóðin ekki, sýnist mér. Gert er grín að þeim sem nefna aðra mynt en Evru og það kallað að skipta um nafn á krónunni og hjálpi okkur ekki neitt.  Jafnvel þó okkur tækist að sannfæra þjóðina um að ganga í ESB er óvíst að við fullnægðum nokkurn tímann skilyrðum ESB um efnahag og ríkisbúskap. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að skilyrðin yrðu okkur ofviða þ.e. við munum ekki uppfylla þau að minnsta kosti á næstu áratugum og sérstaklega ekki eftir að þau varða hert þegar ný löggjöf ESB um hallalausan ríkisbúskap, risa tryggingasjóð til hjálpar illastöddum ríkjum í Evrusamstarfinu ofl. taka gildi á næstunni.

Þetta Evrusamstarf vill ekki nein „bóluríki“ eins og Ísland sem aldrei hefur verið reknið eins og sjálfstætt ríki, heldur höfum við þegið ölmusur og mútur alla okkar lýðveldistíð frá fyrsta degi, hermang, stríðsskaðabætur (þær hæstu í heimi miðað við fólksfjölda þó hér hafi aldrei verið háð stríð) og fleira í þeim dúr. Nú ætlum við að ganga í ESB og reyna að fá þaðan styrki sem jaðarríki (Rural country), halda þannig áfram ölmusustefnunni. Ég tel að til langstíma og skamms sé líklegra til árangurs að við förum að nýta auðlindir okkar, fá arð af þeim, þær eru nú nýttar af fáum án arðgreiðslna sem nokkru nemur og gildir það um auðlindir bæði til lands og sjávar. Það gengur ekki að þjóð hagi sér eins og við höfum gert og ætlum greinilega að gera áfram, lifa á betli.

Það heyrist æ oftar að nú sé komið að sölu bankana, orkufyrirtækjanna og öllu því sem þjóðin á og er ný búin að bjarga frá gjaldþroti með erlendum lánum. Menn láta sér varla detta í hug að þessi verðmætu fyrirtæki verði seld ef til þess kæmi að ríkið losaði sig við þau, nei þau verða færð þeim útvöldu án greiðslu, þetta þekkjum við öll mjög vel. Enginn í þessu landi á fé til kaupana stórfyrirtæki nema lífeyrissjóðirnir en þeir eru brokkgengir og stjórnað af misvitrum mönnum í mörgum tilfellum sem væru til í að selja hverjum sem er hlutinn sinn, jafnvel erlendum vogunarsjóðum og glæpalýð, ef það sýnist gróðavænlegt og hentaði í því augnablikinu, það er að minnstakosti mín skoðun. Látum ekki stjórnmálamenn sem allt vilja selja/gefa, ekki villa okkur sýn og telja okkur trú um að allt sé betur rekið sé það í höndum útvalinna gæðinga, munum hvernig það var á græðgistímanum fyrir haustið 2008 og hvernig þessir snillingar klúðruðu öllu sem þeir komu nærri, hverju einasta fyrirtæki landsins eða þar um bil "DJÖFULSINS SNILLINGAR!!!!"

07 janúar 2012

Ræningjalýðurinn að komast til valda.




Maður er að verða svolítið hugsi yfir stjórn landsins svo ekki sé nú meira sagt það virðist elta þetta vesalings fólk sem þar kemur að málum mikil ógæfa, ótrúleg vandræði kom upp nánast í öllum málum sem á þeirra borð koma. ESB kjaftæðið heltekur þennan lánlausa hóp sem ekki kemur sér saman um nokkurn skapaðan hlut og er hann orðinn svo tvístraður að engum heilvita manni dettur í hug að þetta endi öðruvísi en með sprengingu ef það er þá nokkurt púður eftir í sprengingu. 

Eina leiðin er að hætta þessu ESB umsóknar rugli og klára önnur mál sem eru þessari þjóð nauðsynlegri eins og fiskveiðilöggjöfin sem lánlausi hópurinn lofaði að taka til endurskoðunar en hefur ekki staðið við. Það verður aldrei samþykkt af þjóðinni að ganga í ESB það ætti öllum að vera ljóst. Þetta umsóknar ferli svokallaða er langdýrasta kosningaloforð sem nokkur stjórn hefur þvælt gegnum alþingi og er okkur til stórskammar að halda áfram með, þetta mun skaða okkur mikið í framtíðinni það er alveg ljóst í mínum huga. Fyrir svo utan það að lánlausihópurinn er að færa hrunverjum völdin á silfurfati svo þeir geti haldið áfram þar sem frá var horfið, að ræna okkur og nú munu þeir taka lífeyrissjóðina okkar traustataki í einum pakka því þeim gleymdu þeir í fyrra æðiskastinu þegar þeir tóku bankana, seðlabankann, sparisjóðina, tryggingafélögin og öll önnur fjármálafyrirtæki og hreinsuðu út allt fémætt en þar eru bara skuldir í dag. Í lífeyrissjóðunum er obbinn af öllu fémætu í þessu landi um þessar mundir og því munu þeir liggja vel við höggi þegar ræningjarnir láta vaða  og hrifsa sjóðina til sín.

Ótrúlegt er hvað þessi þjóð okkar lætur sig miklu skipta hvort Forsetinn gefi kost á sér til endurkjörs eða ekki. Mér finnst ekki skipta nokkru máli hvort hann verður áfram eða ekki, þetta er bara mont embætti sem engu skilar enda forsetaembættið ábyrgðarlaust og sama hvað hann gerir, hann ber enga ábyrgð þó svo hann valdi þjóðinni stór tjóni með embættisfærslu sinni, við sitjum uppi með þennan fáránleika. Forsetinn passar svo sem vel með hrunalýðnum næsta kjörtímabil og verður þá allt eins og það var "í þá gömlu góðu daga" þegar menn átu gull við trúarathafnir sínar sem þeir flugu til í einkaþotum um heim allan.
 

03 janúar 2012

Hvað tekur nú við?


Gleðilegt nýtt ár!!
2011 var ár hinna miklu sviptinga í pólitík, sérstaklega rétt áður en það leið undir lok. Þá var settur af eini ráðherrann sem stóð við það sem hann sagði fyrir kosningar, það er tímana tákn.  Reyndar hef ég oft orðið fyrir því að vera kallaður öllum illum nöfnum, einungis vegna þess að halda mig við skoðanir mínar. Allt of margir breyta um kúrs í tíma og ótíma og kalla það að fylgja tímanum, ekki sé allt eins og það var í fyrra eða árið þar áður. Hinn ráðherrann sem settur var af mátti missa sig, enda farinn að reyna að koma því inn hjá þjóðinni að selja ætti bankanna og orkufyrirtækin til gömlu fjölskyldnanna, það fer hrollur um mig. Ekki trúi ég því að almenningur eigi fjármuni til hlutabréfakaupa þannig að fyrirhrun bullið er komið í gang "selja í dreifðri eignaraðild í kauphöllinni" þvílíkt bull, þetta verður allt gefið útvöldum, munum við ekki hvernig þetta var á Davíðs tímanum?? Ekkert hefur breyst sömu slagorðin sömu frasarnir sömu pólitíkusarnir.Ég skil ekki af hverju þjóðin má ekki eiga góð og gróðavænleg fyrirtæki og fá arð af þeim til að lækka skatta td.

Mér finnst ekkert nútímalegt við að ganga í ESB, miklu frekar svolítið gamaldags að læsa þjóðina sem nýlega hefur fengið sjálfstæði inn í bandalagi gamalla nýlendudrottnara, sem meðal annars drottnuðu yfir okkur, það er hreinlega gamaldags að mínu mati. Mér er ómögulegt að sjá ávinninginn af inngöngunni. Við munum færa yfirráð yfir auðlindum okkar til Brussel nákvæmlega eins og við höfum fært meira og minna allt löggjafarvald þangað, allar þær reglugerðir og lög sem sturtast hafa yfir okkur í þúsundavís á síðustu misserum hljóta að gilda um auðlindirnar eins og allt annað hér í landinu hvað sem Kratar segja um sérsamninga um auðlindirnar við báknið, það hefur aldrei tekist að gera slíka samninga.

Það sem knýr kratana áfram í þessu máli er einhver óskiljanlegur hvati til að vera á öndverðum meið við íhaldið sem berst fyrir því að halda völdum þ.e. halda gömlu fjölskyldunum útvöldu sem fengu á silfurfati fjármuni hermangsins í áratugi einnig stríðsgráðann og „Marshalhjálpina“ sem var reynda mútur  til að „kommahreinsa“ samfélagið fyrir kanann, sérstaklega opinberar stofnanir. Þessar mútur runnu beint í vasa útvöldu fjölskyldnanna sem enn eru við völd og eiga stóran hluta allra eigna á Íslandi í dag. Má vera að kratarnir séu gramir íhaldinu fyrir að leyfa þeim ekki að orna sér betur við kjörkatlana með Framsóknarmönnum og þeim sjálfum. Þó verður aldrei skafið af þessum þremur flokkum að þeir stunduðu hermangið af mikilli áfergju þó í misjafnlega miklum mæli, hver um sig.

Það er farið að molna verulega undan Forsætisráðherranum og sýnist mér að mjög styttist í að Jóhanna taki pokann sinn með góðu eða illu. Hún mun hrökklast úr embætti fyrir vorið sýnist mér og verður henni skipt út fyrir hægri krata, á borð við Árna Páli eða Katrínu Júl. sem vilja selja auðlindir, orkufyrirtæki og banka svo við aumingjarnir fáum ekki að njóta ávinningsins af þessum eignum okkar í framtíðinni, sem við björguðum úr úr hræjum gömlu bankanna fyrir fáum misserum en eru nú um þessar mundir loksins að skila arði en þá skal færa vildarvinum þessi verðmæti, sér fólk ekki hverslags glapræði það er??

Ekki gat Forsetinn komið því út úr sér hvað hann hygðist fyrir, heldur bullaði hann út og suður um ekki neitt, hann var ekki alveg svona ruglingslegur þegar hann klappaði fyrir víkingunum. Ég ætla rétt að vona að þjóðin fari nú ekki að hvetja þennan gamlingja til að halda áfram að mæra útrásarvíkingana og þamba með þeim gullbætt vín. Við þurfum allt aðra manngerð í embættið. Tek það fram að ég kaus hann í upphafi og síðan ekki söguna meir. Það má vera að við Forsetinn séum á sömu skoðun hvað varðar inngöngu í ESB en það nægir mér ekki til að halda honum í embætti áfram og svo gæti hann líka skipt um skoðun í því máli eins og hendi sé veifað ef það passar vinsældarróum hans sem hann eltir  eins og unglingsstrákur spottann á sér.

05 desember 2011

Reglugerðafargan og samhæfing

Þeir sem eru í því hlutverki að framleiða matvæli ofan í landsmenn eru ekki öfundsverðir þessa stundina og hafa kannski aldrei verið öfundsverðir. Það bókstaflega rignir yfir framleiðslugreinar matvæla reglugerðafargani frá ESB sem er í sumum tilfellum algerlega fáránlegt og með ólíkindum að vitiborið fólk hafi samið þetta bull sem í mörgum tilfellum þetta er. Allir sem tengjast matvælaframleiðslu hafa fundið fyrir þessum fáránleika undan farið, fáránleika segi ég vegna þess að sumt af þessu á hreinlega ekki við hér.

Þarna er farið fram með óskiljanlegar kröfur um eitthvað sem ekki skilar endilega betri vörum heldur er einhverskonar samhæfing við greinina í ESB löndum, svo fáránlegt sem það er, öll sláturhús og allar kjötvinnslur séu "eins" uppbyggð allstaðar en hefur ekkert með betri og heilbrigðari vörur að gera heldur samræming aðstöðu á samkeppnismarkaði sem sagt allir búi við sömu fullnægjandi eða ófullnægjandi kröfur um húsnæði og búnað. Ég undirstrika að vörurnar eru ekkert betri þó bætt sé við hurð hér og vegg þar og færðar til vélar, því allt byggist þetta á að þeir sem vinna við matvælin og bera á því ábyrgð, séu með hreinlæti og umgengni um hráefnið og starfsemina á hreinu, þar þjóna veggir og hurðir litlu hlutverki ef hitt vantar.

Það er spaugilegt eða kannski grátlegt að hingað komi fólk frá Brussel sérstaklega til að taka út greinina og segja til um hvar eigi að loka fyrir starfsemi og hvar náðasamlegast halda starfsemi áfram og hve marga veggi skuli setja hér og þar um vinnslusali. Þetta er spaugilegt vegna þess að sýkingar í matvælum og þar með fólki eru fráleitt færri í löndum ESB, þær eru mun fleiri og alvarlegri.  Og þar til viðbótar eru notuð efni í dýrafóður sem bönnuð eru hér, einnig er steranotkun í einhverjum mæli þó það sé bannað.

Margar skæðustu pestir í dýrum eru hreinlega fundnar upp í áratuga ef ekki aldagamalli  hefð í þrengslabúskap þessara landa veirur og bakteríur eru hreinlega nefndar eftir borgum, bæjum og vísindamönnum Evrópulanda. Mér finnst íslenskir eftirlitsstofnanir eins og Matís og Mast gera lítið úr sér og þeim sérfræðingum sem þar starfa að flytja inn fólk til að taka út matvælaiðnaðinn sem heyrir undir þær en bankarnir og aðrar miklu þjóðhagslega mikilvægar stofnanir s.s. tryggingafélög, heilbrigðisstofnanir, skólar og þess háttar, skuli íslendingum treyst til að fylgjast með, þrátt fyrir hrunið og þann pakka allan.

Ef matvælaiðnaðurinn hefði staðið sig eins illa og fjármálageirinn, svo ég tali nú ekki um stjórnmálamennina, hefði ég skilið þær ráðstafanir að biðja um erlendar eftirlitsstofnanir hingað til að taka út ósómann en þannig var því ekki farið, matvælageirinn hefur staðið sig vel í öllum megin atriðum a.m.k. þar sem ég þekki best til  eftir nærri 40 ára veru þar.

Svo bíta þessa ríkisstofnanir hausinn af skömminni með því að þiggja hundruð milljóna ef ekki milljarð frá ESB en þeir sem verða fyrir tuga milljóna kostnaði vegna upptöku reglugerðanna, matvælafyrirtækinn, fá engan styrk ekki krónu, heldur er ætlast til að þessi fyrirtæki ýti kostnaðinum út í verðlagið og það hafa menn séð undanfarna mánuði að er raunin og er rétt að byrja, trúið mér.

 Mín skoðun er að eini tilgangurinn með þessu öllu sé að veikja íslenska framleiðslu gagnvart innflutningi. Það eru margir ESB öfgamenn sem myndu fagna því mjög ef íslenskur landbúnaður legðist af og allt væri flutt inn. Það er að minstakosti ekki annað að heyra á þessu krata liði sem tröllríður allri umræðu í þessum málum, "allt svo dýrt á Íslandi og allt of háir styrkir til þessara djöf... bænda" Manni verður stundum illt þegar kratar geysast fram og koma með ýkju sögurnar frá ESB þar sem allt er svo gott og dæmi um það var þegar einn kratinn sem starfaði við "upplýsingaöflun í Brussel " fullyrti að í Belgíu væri nú aldeilis annað að versla í matinn þar fengjust "frjálsir kjúklingar sem gengju úti í guðs grænni náttúrunni en væru ekki framleiddir í búrum eins og á íslandi".

Þetta var sem sagt upplýsingafulltrúi sendur af íslenska ríkinu til Brussel til að upplýsa okkur fíflin um hve allt væri gott í ESB. En staðreyndin er sú að einginn kjúklingur er framleiddur  í búrum á íslandi, ekki einn einasti. Svo er það hitt að kjúklingar mega alls ekki ganga úti samkvæmt reglugerðum frá hinu sama ESB allavegana fengi ég ekki að selja kjúkling sem gengi úti, það er bannað. Fyrir utan að kjúklingar eru um 4,5 vikna gamlir þegar þeim er slátrað og þurfa 30-32 gr. hita fyrstu vikuna, 27 aðra vikuna, 25 þriðju vikuna og 20-22 eftir það, þannig að ekki væru margir dagar árlega á Íslandi sem nýttust í að setja fuglana út, en öðru máli gegnir í fyrirheitna sambandinu þar sem allt er svo gott og hlýtt.

27 nóvember 2011

Nubo, fiskur ofl.

Jæja ekki er ofsögum sagt að órólegheit séu í stjórnarsamstarfinu, tómar uppákomur. Nú hefur Nubo verið hafnað en eins og kunnugt er þá vildi hann fá undanþágu til að kaupa Grímsstaði á fjöllum og varð það niðurstaða Ögmundar, háttvirts Innanríkisráðherra að hafna beiðni þessa prúða ljóðskálds sem bara brosti og gaf af sér mikinn þokka. Það var að minstakosti álit Samfylkingarfólks en mér fannst nú kveða við annan tón eftir höfnun, þá gaf þessi hugprúði ljóðamaður út yfirlýsingu í kínverskum blöðum sem líktust meira því sem við mátti búast af meðlimi kommúnista flokksins kínverska, vondu vesturlöndin að kúga vinnandi alþýðuna í Kína...

Mér fannst tvennt mjög undarlegt í öllu þessu máli, í fyrstalagi gauragangur sumra alþingismanna út af þessu máli. Möllerinn, Árni Páll og maðurinn með fálkanafnið fóru á kostum í hallærislegum hótunum fávitaskap sem sýndi rétt einu sinna að á hinu háa Alþingi eru ekki allir gáfnaperur, nei ekki aldeilis. "Ég ætla að íhuga stöðu mína" sagði ein peran. Þeir heimtuðu að Ömmi færi ekki að lögum a.m.k. myndi fara á svig við lögin og leyfa kínastjórn að kaupa 3% af landinu okkar. Ég segi kínastjórn því það hvarflar ekki að mér að Nubo þessi sé auðmaður eða fjárfestir hann er bara réttur og sléttur starfsmaður kínastjórnar, hverjum dettur í hug að til séu "auðmenn" í alþýðulýðveldinu Kína þar sem allt er í eigu ríkis og alþýðu. Auðmenn sem ekki eru á vegum stjórnarinnar væru umsvifalaust fangelsaðir fyrir þjófnað, það er minn skilningur eftir að hafa lesið Moggann í 50 ár, í Kína er enginn ríkari en annar, það er bannað punktur.

Svo er það kvótakerfið okkar, nú er Jón sjávarútvegs búinn að kasta fram frumvarpsdrögum um breytingar á þessu bölvuðu kvótakerfi sem Jóhanna forsætis segir að verði aldrei sent þinginu sem stjórnarfrumvarp. Það er svosem ekkert skrítið ef ég hef skilið þessi drög rétt eru þau eins langt frá upphaflegu kosningaloforðum stjórnarflokkana og hægt er, nánast framlenging af því kerfi sem nú er við líði en ef ég man rétt þá var firningarleiðin það sem lofað var sem þíddi að innkalla átti allar heimildir og úthluta þeim aftur þannig að gjald yrði greitt fyrir nýtingaréttinn. En Jón Bjarna "gaf" makrílkvótann þannig að ekki er hægt að komast lengra frá upphaflegri ætlun ríkisstjórnarinnar um að þjóðin fengi eðlilegt gjald fyrir nýtingarréttinn, þar með missti þjóðin um 5 milljarða á yfirstandandi fiskveiðiári beint ofaní vasa útgerðarmanna og munar um minna. 

20 nóvember 2011

Nú er rétt að biðja Guð að hjálpa sér!!

SjálftökuFlokkurinn hefur legið yfir því að greiða atkvæði um Evrópu málin í allan dag til að fá niðurstöðu sem er gamlingjunum í flokknum hugnanleg, já gamlingjunum, þarna virtust vera tómir gamlingjar sem réðu ferðinni poppuðu upp hver af öðrum flestir löngu hættir í pólitík í orði kveðnu en virðast ráða ótrúlega miklu enda dýrkaðir eins og guðir, allir 1600 fundarmennirnir stóðu upp þegar DO fór í pontu.

Þessi ólýðræðislegi Flokkur gerir það sem engin annar stjórnmálaflokkur kæmist upp með, að kjósa þangað til "rétt" niðurstaða fæst í mjög umdeildu máli. Og svo þetta bölvað klapp í tíma og ótíma og grenjur þegar þessir lýðskrumarar eru að mæra hvorn annan, þá er bara ekki hægt að halda aftur af táraflóðinu "fyrirgefðu Geir snökt snökt"  ekki vissi ég að Geir væri holdgerfingur þjóðarinnar en það var hún sem verðskuldar afsökun ekki gerandinn sjálfur.

Bjarni Vafningur sagði að nú þyrfti að koma ríkisstjórninni frá og SjálftökuFflokknum til valda, manni dauð bregður þegar þetta er sagt því sporin hræða svo sannarlega.  Og er best að biðja Guð að hjálpa sér eins og síra Sigvaldi gerði í leikritinu svo eftirminnilega. Ef þessi þjóð kemur þessu græðgisliði til valda á ný skal ég ekki vorkenna henni þegar hún verður rænd því sem eftir er, til dæmis lífeyrirsjóðunum okkar en það varð svolítið eftir í þeim vegna mistaka hjá SjálftökuFlokknum þegar þeir gáfu bankana, sparisjóðina og önnur fjármálafyrirtæki þá gleymdist að breyta lögum til að gera það kleyft að gefa þá líka, hver man ekki "fé án hirðis frasanum" sem Pétur Blöndal fann upp og Flokkurinn ærðist yfir greind þessa manns og breytti lögum í hvelli til að hægt væri að gefa sparisjóðina til Sjálfstæðishirða sem hirtu allt. Þeir gleymdu lífeyrissjóðunum í hamaganginum sem varð þegar þetta lið æddi um fjármálakerfið okkar hrifsaði allt sem á vegi þess varð, hreinlega allt.

Ég trúi því ekki að Guð sé svo vondur aða illa innrættur að hann láti það gerast að þessir ræningja lýður komist til valda aftur meðan ég tóri, það get ég svarið. Nóg verður að vita af hækjuflokkunum leika lausum hala og bjóða aleigu þjóðarinnar í skiptum fyrir valdastóla.

16 nóvember 2011

Blessaðir "menninir" sagði amma.

Ég hló mikið áðan þegar ég las eitt eyjubloggið, þar var á ferðinni maður sem var að koma frá útlöndum (og þurfti að koma því að) og hafði orðið var við hóp fólks á flugvellinum sem var að koma frá kanaríeyjum en hann frá Danmörku. Þetta er svo sem ekkert hlægilegt en að hann sagðist hafa heyrt útundan sér á tal fólksins að eingin úr hópnum hefði dáið úr matareitrun í ferðinni??

Og það er heldur ekki hlægilegt en maðurinn var með þessum ummælum að sanna, hygg ég, að ekki væri matareitrun í gangi í löndum ESB og okkur væri alveg óhætt að borða mat frá þeim löndum, þetta er hlægilegt og um leið ótrúleg óskammfeilni hjá manni sem er eða var framalega í verkalýðshreyfingunni og ætti að nota betri rök fyrir til dæmis inngöngunni í ESB, en þetta gefur smá sýnishorn af ofstopanaum sem tröllríður þessari umræðu, kannske hafa rökin fyrir launahækkunum verið svipaðar og sér þá hver maður að ekki er von á góðu.

Það sem maðurinn hefur sennilega verið að reyna að sanna er að ekki sé nauðsynlegt að framleiða matvörur á íslandi eins og sumir telja, heldur flytja þær bara inn því þær séu alveg öruggar frá ESB löndunum og lausar við sýkingar, óþarfi að basla við að framleiða þær hér á landi. En reyna að telja okkur trú um að hópur sem þú gengur framhjá í Leifsstöð tilkynni þér hve margir dóu úr matareitrun í túrnum eða dóu ekki, sé sönnun þess að matur sé öruggur í öllum ESB löndum er fáránlegt. 

Matvæli á Íslandi eru ekki 100% örugg hvað varðar matareitrun enda oftast, en ekki alltaf,  um krossmengun af mannavöldum að ræða sem getur gerst allstaðar þar sem menn vinna við matvæli. Hins vegar er rétt að halda því til haga að ef menn eru að tala um landbúnaðarvöruframleiðsluna á búunum sjálfum þá er það marg reynt að sýkingar eru oftar greindar á stórum búum og í evróplöndunum eru mörg gríðarlega stór bú. Við sem störfum við þessa framleiðslu hér á landi vitum þetta, en lítið þýðir að tala um það þar sem rök eins og hér fyrir ofan koma á færibandi og kaffæra alla eðlilega umræðu um þessi mál. Allir geta "googlað" allt um matareitranir ef þeir kæra sig um, td. hér eða hér 

Sumir halda því fram að evrópusambandið greiði ekki niður landbúnaðarvörur eins og gert er hér á landi, það er alrangt það heitir bara öðru nafni "beinn markaðsstuðningur" ekki "niðurgreiðsla". Evrópusambandið styrkir landbúnaðarframleiðsluna sína gríðarlega, einnig sjávarútveginn sinn og dreifbýlið ( rural development) þetta geta menn skoðað á vef sambandsins til dæmis hér 


Budget 2011 in figures