Forsætisráðherrann skökk í pontu á alþingi og hundskammaði
Jón Bjarnason fyrrverandi Sjávarútvegsráðherra fyrir að hann hafi slugsað við
samningu nýs fiskveiðifrumvarps „kvótafrumvarps“ í tvö ár og þess vegna kæmi
það svo seint fram að hæpið er að náist að afgreiða það á þessu kjörtímabili. Það er náttúrulega mjög ámælisvert og
ráðherranum til skammar enda var hann látinn fara. Þeim mun einkennilegra er að
stjórnarskrártillaga stjórnlagaráðs skuli ekki heldur ná að klárast eins og
lofað var vegna aumingjaskapar forsætisráðherrans sem hafði með það mál að gera
og getur ekki skammað neinn nema sjálfan sig en gerir það af sjálfsögðu ekki
heldur kennir stjórnarandstöðunni um, því líkir veraldar aumingjar eru þessir
hálfvitar sem kosnir voru á þing.
þeim er ómögulegt að gera nokkurn skapaðan
hlut rétt. Ég er satt að segja búinn að fá nóg af þessum fávitagangi sem þessir
bjánar viðhafa á fullu kaupi, þetta er nákvæmlega eins og maður sé að horfa á
farsa í leikhúsi en ekki störf vitiborinna manna og kvenna sem þjóðin kaus á
þing til að starfa að vexti og viðgangi þjóðfélagsins og stýra okkur út úr þeim
skerjagarði sem síðasta ríkisstjórn sigldi þjóðfélaginu inn í og strandaði. Það
er algerlega óásættanlegt hvernig þetta vitfirrta þing heldur á málum fyrir
umbjóðendur sína. Það er keppst við að eyðileggja allt sem til betri vegar
horfir með málþófi og brotthlaupi þingmanna til að ekki sé hægt að vinna þau
verk sem vinna þarf. Maður á bara ekki til eitt einasta orð yfir þetta rugl,
misbeitingu valds og ofbeldi sem þarna viðgengst svo maður tali nú ekki um
lítilsvirðinguna sem þetta lágkúrulega hyski sýnir hvert öðru á vinnustað
sínum. Um leið er þetta lið að sýna okkur sem borgum þeim laun, fingurinn og
ættum við að reyna að muna það þó ekki væri nema í eitt ár.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli