Staðreyndin er að þetta salt er ekki hættulegra til notkunar hér á landi en í öðrum evrópulöndum þar sem það er notað, þetta er ekki sér framleitt fyrir Ísland. Til hvers er "iðnaðarsalt" notað ef ekki í iðnaði? Iðnaðarsalt er minna unnið og þess vegna ódýrara en matar salt en ekkert hættulegra, kemur úr sömu námu, það er minna sigtað og þessvegna grófara og hentar ekki til að setja í saltstauka með litlum götum, á veitingastöðum og í heimahúsum.
Spánverjar gerðu kröfu hér áður fyrr um að salt framleitt á Spáni færi í þann saltfisk sem þeir keyptu af okkur og við því var orðið. Ég kom oft til Torrevieja og Almería á Spáni til að sækja salt þegar ég var til sjós. Þar er saltið framleitt þannig að sjó er dælt upp í grunn lón og sólin látin eima vatnið frá sjónum og verður þá saltið eftir á botni lónsins. Því er síðan ýtt með jarðýtu í haug við annan enda lónsins, þar er það oft lengi áður en því er mokað upp á færiband sem færir það til skips í "bulk" þ.e. í lausu. Ekki kæmi mér á óvart að eitthvað gæti blandast saltinu meðan það bíður flutnings. Síðan er saltinu mokað með krabba á vörubíla þegar heim er komið, líka í lausu, og því sturtað inn á gólf í fiskvinnsluhúsinu og því mokað yfir fiskinn eða sett í pækil. Þetta þekkja allir sem hafa unnið í fiski á Íslandi.
Torrevieja Salt production. Er þetta iðnaðar salt? eða fer það í fiskinn okkar.
Oft eru notaðar "traktorsgröfur" í lestum skipsins til losa um saltið að færa að krabbanum. Það má gera sér í hugarlund að ýmislegt geti komist í saltið frá því sjónum var dælt upp í lónið á Spáni þar til það fer í fiskinn hér heima gröfur, sem kannski eru notaðar til að moka haughús og ýtur geta lekið olíu, óhreinindi og nagdýr geta verið í lestum skipsins einnig getur opinn pallur vörubílsins verið óhreinn (td. fuglaskítur á honum) og svo geta komist óhreinindi í hauginn í salthúsinu hjá fiskverkandanum.Mér skilst reyndar að í dag sé salt sekkjað í stórsekki af innflutningsaðilum hér heima og einnig flutt inn í þessum stórsekkjum en stundum geymt úti í þeim, bæði hér heima og erlendis og telst þá væntanlega "Iðnaðarsalt". Hversu stór hluti saltsins sem notaður er í saltfiskverkunar er sekkjaður veit ég ekki. Ekki minnist ég þess að hafa heyrt um fjöldadauðsföll vegna saltfisksáts.
1 ummæli:
Skrifa ummæli